Íslenski EuroJam hópurinn
Önnur skjöl
Félög skátanna...
Leitarbox

20.07.2007 01:50:30 / johanna

Alheimsmótið og slúðurbókin....

Sæl öll.

Var einhver sem var með að grafa slúðurbókina. Ég man hjá hvaða tré hún var og sirka áttina. En þar sem ég var ekki þegar slúðurbókin var grafin er einhver sem man það nákvæmlega. Ég bíð nefnilega spennt að sjá hana.

En svona af því að það er bara ein vika og nokkrir klukkutíma í brottför þá langaði mig bara að rifja svona aðeins upp fyrir ykkur...

 

http://www.youtube.com/watch?v=XSjuRs5Xu1k

 

Kv, Jóhanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 20:40:17 / johanna

Alheimsmótið...

Jæja, ný styttist í alheimsmótið...

Hverjir eru að fara á það... Munið þið við þurfum að ná í eigur okkar... Slúðurbókina...

Eins ætluðum við að fara saman og skoða efri hæðina í Hylands house... Var deitið ekki seinni sunnudagurinn á mótinu...

Hvernig er annars hljóðið í fólki, ég sá að Heiðabúar og Svanir verða saman í sveit. En hverjir eru nákvæmlega að fara...

Sólarkveðja frá Ungverjalandi... Jóhanna.

P.s. auðvitað ætla ég að fara á Alheimsmótið, maður getur ekki látið sig vanta á svona stórviðburði. Ég kem til landsins bara rétt fyrir afmælismót, þannig að endilega ef að þið verið á afmælismótinu þá megið þið kíkja í heimsókn á Svanasvæðið, væri gaman að hitta á ykkur....


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 18:12:25 / thora

22. febrúar 2007

 

 \"\"

 

 

 

Til hamingju með daginn kæru skátar!! :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 21:56:44 / arnor

Júrodjamm partý!!!!!!!11one

Halló, ég heiti Sigvaldi og ég kann á þverflautu. Mér finnst gaman að leika mér í snjónum, nú eða að draga ýsur. Ég á einmitt heimsmetið í því, 20m á 1sek.

 

En nóg um mig. Lítill fugl hvíslaði að mér að til stæði að djæmmzlast. Það ætla hinir fræknu júródjammarar að gera, enda djammarar með meiru. Við ætlum okkur að taka á leigu bústað eða skála og djamma feitan í Marz, spurningin er hvenær, könnunin er upppi, og ekki rigga hana.

 Stefnór


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 12:41:03 / johanna

Til hamingju með daginn, Einar...

Til hamingju með daginn, Einar.

Vonandi átt þú frábæran dag með öllu frábæra fólkinu á Úlfljótsvatni.

Ég á því miður ekki heimangengt, enda held ég af landi brott eftir örfáa daga. Ég vil hér með bjóða alla velkomna til mín til Ungverjalands í heimsókn. Ykkur stendur alltaf til boða að koma við hjá mér. Svo sé ég ykkur mörg alla vega ekki seinna en á Alheimsmótinu 2007.

Góða skemmtun öll...

Jóhanna


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 16:05:02 / kalli

Þær eiga afmæli á morgun, þær eiga afmæli á morgun.

Ykkur er öllum [þeas öllum sultum] boðið í eins árs (og einnar viku) afmæli.

Föstudaginn 27. júlí ætlum við að hittast. Við öll! Engar afsakanir! [dánarvottorð kannski tekið gilt] Brjálað stuð, ó minn guð.

Það verðu allt vitlaust.

Málum bæinn rauðan.

ALLIR AÐ MÆTA


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 08:12:36 / kalli

Ferðasaga frá Lundúnúm.

Nenni ekki að hafa tvær aðskildar ferðasögur. Sagan er því inni á nýja jarlinum.

www.jarlinn.com

Njótið í botn.

---

Þurfum samt endilega að fara að vinna í hittingnum. Allt að gerast.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 14:16:51 / kalli

e

f:klikk:

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 21:12:10 / thora

Allíúbba!

Góða Kvöldið kæru vinir :)

Hvað segiði, hvað er að frétta?

Nú fer að styttast í það að við förum að hittast helgina merkilegu á Úlfljótsvatni svona til að "kynnast" ;P Gaman af því... Hinsvegar verð ég ekki á staðnum, enda þekki ég ykkur ;) heh... Ætla sko bara að vera í Noregi :D

En hvað um það, hvernig er með ykkur hin..eitthvað að fjáraflast? 8) Og þið..Álftnesingar?? :) Hverjir eru flottir og geggjaðir á því að skella sér!? Hinir eru bara lúúúúðar:D

En já, bara að leggja nokkur orð í belg:)

-Þóra

 ... P.s Finnst ykkur ekki alltaf jafn yndislegt þegar ég er með lit á stöfunum, og þá bleikan ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 22:29:17 / gunni

DJAMM JÚRÓ!!!

Kvenfólk! Kindur! Krakkar og Kommúnistar!!!!! Ég flyt ykkur miklar gleði fréttir!!! ÉG OG KALLI!!! Jaaahá, ég sagði ÉG OG KALLI!!! Við erum að fara á hið langþráða mót sem verður haldið í Hylands Park á næsta ári. Við munum gegna mörgum mikilvægum skildum á þessu móti enda sér útnefndir starfsmenn sérstaklega valdir af íslensku þjóðinni til að bera fagnaðarerindi okkar tignarlega farsældar fróns í hæsta sessi!...eða jamm..það er búið að samþyggja umsóknina okkar um að vera starfsmenn á mótinu....tomato potato... En endilega, gerið eitthvað sætt fyrir mig svo að ég deyji ekki úr leiðindum og hita hérna! Jibbí jibbí jey!!! Svo erum við Kalli reyndar líka að fara að skella okkur til London í sumar afþví að við náðum bara einfaldlega ekki að vera eins menningarlegir og við í raun og veru þegar við vorum með ykkur verslunarsjúku brjáluðu íslendingunum! Hah, nú er ég búinn að móðga ykkur..komið nú með komment eða verið súr á svip..

» 12 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 19:43:29 / johanna

Vard bara ad segja ykkur tetta.

Vard bara ad segja ykkur ad eg er nybuin ad vera i mjög stuttu stoppi i london.

Taeginlegt ad vera buin ad vera tarna med ykkur og vita hvad vaeri snidugast ad fara. Tokum alveg massa ferd a tetta, skodum vaxmyndasafnid, London eye, tokum straedoinn og krusudum Oxford street. Fórum m.a. i plötubúdina okkar hja leikhusinu. En eg klikkadi alveg a Sainsburys...

Kvedja fra Ungverjalandi, Jóhanna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 14:52:46 / kalli

Fundur Fundur Fundur Fundur

Vil bara minna Suðurnesjamenn örstutt á fundinn á miðvikudaginn.
Ræddar verða fjáraflanir.
Hver veit nema Kristinn baki eitthvað sniðugt.

Allir að Mæta.

Miðvikudagurinn 29. kl átta.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 20:20:50 / kalli

Þagniði, Kalli er að fara að tala.

Ég hef svo sem lítið að gera hér annað en að henda smá skít. Ég fór bara að pæla í þessari skoðanakönnun.

Það er nefnilega þannig,  alla vega hjá mér, að ef maður villist eitthvað þá er mjög sjaldan sem maður hefur einhvern tilgang með því að villast. Villtist hingað til að ...

En fyrir utan það þá er ég í fullu fjöri. Sit hér á rúminu með tölvuna hægra megin við mig, sný upp á hrygginn, hef smá teygjutilfinningu í vinstri síðunni af snúningnum og hlusta á videoid í bakgrunninn, hey hey hey ó kei ó kei.

Nú þegar ég hlusta á þetta lag þá kveiki ég á perunni, nú veit ég hvað höfundur á við með ó kei ó kei. kei er náttúrulega hljóðskrift fyrir K. Hvað þýðir K annað en Kalli. ó kalli ó kalli ó kalli. Þvílík snilld er fleiri þúsund manns að tilbiðja mann bara á einu kvöldi.

En nú verð ég að fara að svara bænum, sí jú.

E.s.
Ég Karl Njálsson tilkynni hér með (örugglega í þriðja skiptið) að ég hef sótt um mótið og er því líklegt að ég fari. Ekkert er þó á hreinu. Allt er í heiminum hverfult.

can't wait to meat (get ekki beðið að kjöti :S) you gays.

E.e.s.
Minni á heimsveldið www.jarlinn.com
Þegar ég verð alráðugur þá er betra að vera við hlið mér mér en á móti mér. (ég neflilega frussa oft þegar ég tala )


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:31:13 / einar

landsmót...

Þeir sem voru á Landsmóti skáta í sumar muna kannski gróflega eftir því að þar var gott veður... og 4000 skátar.

Hið ægilega fjölmiðlaveldi, ee.is, hefur nú lagt lokahönd á myndband mótsins og má skoða það á þessari slóð:

http://www.undarlegt.com/Landsmot_2005_litid.wmv


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 01:07:29 / einar

Já já, þið segið það?

Jæja, börnin góð.

Ég vildi nú bara skilja eftir smá orðsendingu hérna til að fullvissa ykkur um að ég er ekki búinn að gleyma ykkur - og ég er þess fullviss að Jóhanna hugsar enn til ykkar með söknuði.

Ekki að það sé nein afsökun, en undanfarnir mánuðir hafa verið ansi stífir hjá mér og lítið farið fyrir frítíma. Sé reyndar ekki fram á mikla breytingu í þeim efnum á næstunni...

En já, ég hitti Gunna fyrir jól. Veit ekki alveg afhverju honum kom "anal" í huga að því tilefni... vona að það sé mjög langsótt og eigi sér fullkomlega eðlilega skýringu...

...Aha... Eðlilegt... Gunni?... Aha...

Allavega, að öllu gamni slepptu þá langaði mig að forvitnast um hverjir hafa sótt um á Jamboree og í hvaða stöðu. Þ.e.a.s. hverjir ætla sem þátttakendur, hverjir sem sveitarforingjar, hverjir sem starfsmen og hverjir sem mörgæsir.

Ég hef, með fyrirvara, gefið vilyrði fyrir því að snúa aftur á vettvang en veit ekki alveg í hvaða stöðu ég verð. Maður er jú bara verkfæri æðri afla... eða þannig.

En ef það fellur manni í skaut að vera sveitarforingi væri gaman að vita hvort maður gæti vélað eitthvert ykkar í sveit með sér.

Sjáumst síðar.
Einar layoutlúði.


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11